Aðalfundur FÍH 2020

Fundarboð.

Aðalfundur FÍH 2020 verður haldinn þriðjudaginn 9.júní kl. 18:00 í sal FÍH, Rauðagerði 27.

Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar, kosning til stjórnar (kosið er um formann og meðstjórnanda), önnur mál.

Boðið verður upp á veitingar í hléi.

Vert er að benda á eftirfarandi úr lögum félagsins: Framboð til stjórnarsetu skulu berast skrifstofu félagsins a.m.k. viku fyrir boðaðan aðalfund. Stjórn er heimilt að tilnefna félagsmenn í stjórnir og ráð hafi ekki borist framboð fyrir tilskilinn tíma.

Stjórn félagsins hvetur alla félagsmenn til þess að mæta og taka þátt í starfi félagsins og um leið framtíðarskipan þess.

Stjórn FÍH.