Vetrarþing kennaradeildar FÍH

 

Vetrarþing FÍH

Þann 27. janúar næstkomandi mun kennaradeild FÍH standa fyrir vetrarþingi í sal FÍH í Rauðagerði 27. FÍH vill með þinginu stuðla að faglegri umræðu um tónlistarkennslu og bjóða kennurum að taka þátt í dagskrá sem tekur á mikilvægum málefnum sem snúa að tónlistarmenntun. Vetrarþingið getur jafnframt nýst sem hluti af símenntunaráætlun tónlistarskólanna. Á þinginu nú í vetur verður boðið upp á áhugaverða fyrirlestra og opnar umræður í tengslum við þau. Við bjóðum alla kennara og tónlistarmenn velkomna að taka þátt í þinginu.

 

10.00   Hvað er á seyði á sviði tónlistarmenntunarfræða. Dr. Helga Rut Guðmundsdóttir

Fyrirlesturinn byggir á nýjustu straumum í fræðunum og nýlegum heimsóknum í stofnanir sem mennta tónlistarkennara í New York, Los Angeles, Bergen og Budapest.

 

11.00   Kaffihlé

 

11.15 Rytmísk tónlistarkennsla, aðferðir og nýbreytni í skólastarfi- pallborðsumræður

           Snorri Sigurðarson, Haukur Gröndal og Sigrún Kristborg Jónsdóttir ræða rytmíska tónlistarkennslu út frá ólíkum sjónarhornum. Breytingar á rytmísku tónlistarnámi á íslandi og nýbreytni í skólastarfi.

 

12.15   Hádegismatur að hætti hússins

 

13.00   Fjarnám- nýjar leiðir í tónlistarnámi- Stefán S. Stefánsson

            Kynning á fjarnámi við MÍT

 

14.00   Þinglok

 

Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og vonumst við til að sjá sem flesta kennara og tónlistarmenn. Reiknað er með opnum umræðum um viðfangsefnið í lok hvers fyrirlestrar. Þingið er þátttakendum að kostnaðarlausu sem og hádegisverður. Vinsamlega skráið ykkur hjá FÍH fyrir 24. janúar í síma 5888255 eða sendið póst á netfangið fih@fih.is