STÍR Opinn fundur í Austurbæjarbíóí 2. maí kl. 20

Samtök tónlistarskóla í Reykjavík, STÍR, verða með opinn fund í Austurbæjarbíói miðvikudaginn 2.maí kl. 20.00 um framtíð tónlistarkennslu í Reykjavíkurborg.

Á fundinum verður m.a. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Eyþór Arnalds borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Það gefst kærkomið tækifæri til að kynnast hug þessarra frambjóðenda til málefna tónlistarkennslu í Reykjavík.

Framsöguerindi flytur Júlíana Indriðadóttir skólastjóri Tónskóla Sigursveins. Það er ljóst þeim sem fylgst hafa með málefnum tónlistarskóla undanfarin misseri að víða hefur vandi steðjað að. Enn eru tónlistarskólar að súpa seyðið af hruninu 2008.

Það er mikilvægt að allir sem láta sér annt um tónlistarkennslu í höfuðborginni Reykjavík mæti á fundinn og láti skoðun sína í ljós. Blómlegt tónlistarlíf á Íslandi á rætur sínar að rekja til öflugrar tónlistarmenntunar.
Viljum við sjá öflugt tónlistarlíf áfram á Íslandi?
Ef svo er, mætum á fundinn og látum í okkur heyra!

https://www.facebook.com/events/373336526514485/?notif_t=plan_user_joined&notif_id=1524760500244731

Með kveðju

Félag íslenskra hljómlistarmanna