Aljóðlegi dagur jazzins haldinn hátíðlegur
Fréttatilkynning – Aljóðlegi dagur jazzins haldinn hátíðlegur
Mánudaginn 30. apríl verður haldið upp á hinn árlega alþjóðlega dag jazzins en UNESCO útnefndi þennan tiltekna dag sem hinn opinbera dag jazzins árið 2011. Jazztónlist getur í sínum mörgu og fjölbreyttu myndum verið tákn sameiningar fyrir fólk af ólíkum uppruna og frá öllum heimshornum sem hlustendur og/eða virkir þátttakendur. Jazzdeild FÍH ásamt, Jazzklúbbnum Múlanum, Kex, Húrra og Bryggjunni Brugghús ætla af þessu tilefni að standa fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri tónlistardagskrá þennan dag í Hörpu og fleiri stöðum vítt og breytt um borgina sem halda reglulega jazztónleika. Frekari upplýsingar um alþjóðlega jazzdaginn má finna á www.jazzday.com
Kl. 20:00. Bryggjan Brugghús, Grandagarður 8 – Helgi Björns og jazzkvartett
Helgi Björns, söngur
Ari Bragi Kárason, trompet
Kjartan Valdemarsson, píanó
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, bassi
Einar Scheving, trommur
Kl. 20:30.
Kex, Skúlagata 28 – Latin-jazz kvintett Tómasar R. Einarssonar
Snorri Sigurðarson, trompet
Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, básúna og fiðla
Gunnar Gunnarsson, píanó
Tómas R. Einarsson, bassi
Kristófer Rodríguez Svönuson, kóngatrommur
Kl. 21:00. Múlinn Jazzklúbbur, Björtuloftum, Hörpu – ASA Tríó + Jóel Páls
Jóel Pálsson, saxófónn
Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar
Agnar Már Magnússon, Hammond orgel
Scott McLemore, trommur
Kl. 21:00. Húrra, Tryggvagata 22 – Mánujdass
Helgi Rúnar Heiðarsson, saxófónn
Hrafnkell Gauti Sigurðarson, gítar
Andri Guðmundsson, bassi
Óskar Kjartansson, trommur
Kær kveðja,
f.h. stjórnar Jazzdeildar FÍH
Ólafur Jónsson
sími: 868-6673
www.jazzday.com.
harpa.is