Nýttu rétt þinn !
Nýttu rétt þinn!
Við vekjum athygli á að fullgildir félagsmenn FÍH hafa ýmsan rétt sem um er að gera að nýta:
Menningarsjóður FÍH
Allir geta sótt í Menningarsjóð FÍH um styrki til góðra verka í tónlist, útgáfu, tónleikahalds og margs annars sem er tónlistartengt
Starfsmenntunarsjóður FÍH
Kennarar og organistar eiga rétt til að sækja í Starfsmenntunarsjóð um styrki til frekari menntunar. Um gæti verið að ræða einkatíma eða námskeið hér- eða erlendis eða kennaraferðir. Einnig eru veittir styrkir til námsgagnagerðar
Orlofshús FÍH
Auk aðgangs að orlofshúsum BHM þá rekur FÍH tvö orlofshús fyrir félagsmenn, á Ökrum í Borgarfirði og í Úthlíð í Biskupstungum.
Í gegnum aðild FÍH er eftirfarandi í boði hjá BHM:
Styrktarsjóður
Félagsmenn FÍH, sem greiða í Styrktarsjóð BHM, eiga rétt á styrkjum varðandi
- Líkamsrækt
- Meðferð á sál og líkama
- Krabbameinsleit
- Gleraugu og augnaðgerðir
- Heyrnartæki
- Tannviðgerðir
- Áhættumat hjá Hjartavernd
- Fæðingastyrk
- Ættleiðingastyrk
- Glasafrjóvgun
- Sjúkradagpeninga
- Endurhæfingu á heilsustofnun
- Vímuefnameðferð
- Dánarbætur
- Starfstengd áföll eða óvænt starfslok
- Ferðastyrk
- Annan heilbrigðiskostnað
Orlofssjóður
BHM rekur fjölda orlofshús hér og erlendis sem félagsmenn geta sótt um
Við hvetjum ykkur til að fara inn á heimasíður FÍH og BHM til að skoða hvaða stuðningi þið eigið rétt á!
Bestu kveðjur, FÍH