FíH – 1. úthlutun úr Menningarsjóði 2022

Ágætu félagsmenn,

við vekjum athygli ykkar á að næsti fundur úthlutunarnefndar Menningarsjóðs FÍH er 9. mars og að umsóknir þurfa að hafa borist fyrir miðnætti 8. mars til að umsóknin komi til greina við þá úthlutun.

Rafrænt umsóknareyðublað er að finna undir flipanum „Umsóknir“ —> „Menningarsjóður“.

Þar má einnig lesa úthlutunarreglur sjóðsins og við minnum á að umsóknir koma aðeins til greina ef upplýsingagjöfin er fullnægjandi.

Aðeins verður tilkynnt um niðurstöður styrkveitinga með rafrænum hætti en ekki bréfasendingum eins og áður. Ef svör berast ekki til ykkar af afloknum fundi biðjum við ykkur um að láta okkur vita, allir eiga að fá sitt svar! 


Bestu kveðjur,

Úthlutunarnefnd Menningarsjóðs FÍH