Aðalfundur FÍH 2022

Kæru félagsmenn,

Aðalfundur FÍH 2022 verður haldinn þriðjudaginn 26. apríl  kl. 18:00 í sal FÍH, Rauðagerði 27. Einnig verður hægt að sækja aðalfundinn á ZOOM fjarfundasniði.

Fundarefni:

  • Venjuleg aðalfundarstörf
  • Lagabreytingar
  • Kosning til stjórnar  (kosið er um formann og meðstjórnanda)
  • Önnur mál

Boðið verður upp á veitingar í hléi.

Vert er að benda á eftirfarandi úr lögum félagsins:

Framboð til stjórnarsetu skulu berast skrifstofu félagsins a.m.k.
viku fyrir boðaðan aðalfund. Stjórn er heimilt að tilnefna félagsmenn í stjórnir og ráð hafi
ekki borist framboð fyrir tilskilinn tíma.

Við vonumst til að sem flest sjái sér fært að mæta til að kynna sér starfið og hafa áhrif á hvernig við vinnum til framtíðar!

Bestu kveðjur

Stjórn FÍH