Myndir úr 90 ára afmæli félagsins
Við þökkum þeim fjölmörgu sem sóttu afmælisboð félagsins á föstudaginn 25. mars.
Fjöldi frábærra listamanna komu fram og góður rómur var gerður að veitingunum frá NOMY.
Heiðursgesturinn, Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra, lék á alls oddi og í verkum hennar og tali má finna þann hlýhug
og samstöðu sem hún hefur sýnt tónlistarfólki, nú síðast er hún kynnti væntanlega stofnun Tónlistarmiðstöðvar.
Við minnum á samfélagsmiðla FÍH og lyklakippuna sem þið eigið öll að fá.
Myndir frá viðburðinum má finna á facebooksíðu félagsins.
Til hamingju með afmælið FÍH fólk!
Ljósmyndari var Mummi Lú. Hér koma nokkrar myndir úr veislunni: