Borgarleikhús 2023
KJARASAMNINGUR LEIKFÉLAGS REYKJAVÍKUR ses OG FÉLAGS ÍSLENSKRA HLJÓMLISTARMANNA um þóknun til hljómlistarmanna fyrir hljóðfæraleik á leiksýningum, við æfingar og upptökur hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1.gr. Forgangsréttur til starfa
Kjarasamningur 1.4. 2023:
Borgarleikhússamningur 1.4. 2023 – 31.3. 2024
Borgarleikhús 2016 Heildarsamningur
-
1. gr. Forgangsréttur til starfa
1.1 Forgangsréttur.Meðlimir í Félagi íslenskra hljómlistarmanna skulu hafa forgangsrétt til alls hljóðfæraleiks í leiksýningum á vegum Leikfélags Reykjavíkur. Undanskilin forgangsrétti þessum eru þó leikhljóð sem ekki teljast listrænn hljómlistarflutningur.
Veita má undanþágu frá ofannefndu ákvæði um forgangsrétt ef um gestasýningar er að ræða eða ef eigi fæst innlendur hljómlistarmaður til starfans.1.2 Skriflegur ráðningarsamningur.
Gera skal skriflegan ráðningarsamning við hvern hljómlistarmann áður en æfingar hefjast. Ráðningarsamningur skal gerður í því formi sem aðilar verða ásáttir um.
Leikfélaginu ber að tilkynna FÍH bréflega hvaða hljómlistarmenn eru ráðnir í viðkomandi sýningu. FÍH skuldbindur sig til að fullgildir meðlimir þess haldi samning þennan. -
2. gr. Laun
2.1 Frá 1.4.2023 fá hljómlistarmenn greidd sýningar- og æfingarlaun:
2.1.1 Sýningarlaun hljómlistarmanna eru sem hér segir:
Sýning 1 Viðvera allt að 2 klst. Fullgildur hljóðfæraleikari kr. 24.599 Leiðandi maður kr. 26.529 Sýning 2 Viðvera allt að 3 klst. Fullgildur hljóðfæraleikari kr. 29.421 Leiðandi maður kr. 31.833 Sýning 3 Viðvera umfram 3 klst. Fullgildur hljóðfæraleikari kr. 34.256 Leiðandi maður kr. 37.137 Ef sýning er sýnd oftar en einu sinni sama dag skal greiða 75% af sýningarlaunum fyrir hverja sýningu umfram eina.
2.1.2 Æfingarlaun hljómlistarmanna eru sem hér segir:
Æfing 1 Æfing allt að 3 klst. Fullgildur hljóðfæraleikari kr. 20.083 Leiðandi maður kr. 22.089 Æfing 2 Æfing allt að 4 klst. Fullgildur hljóðfæraleikari kr. 26.775 Leiðandi maður kr. 29.453 Æfing 3 Æfing allt að 5 klst. Fullgildur hljóðfæraleikari kr. 33.470 Leiðandi maður kr. 36.816 Æfing 4 Æfing allt að 6 klst. Fullgildur hljóðfæraleikari kr. 40.162 Leiðandi maður kr. 44.180 Krefjist verkið þess að starfandi sé konsertmeistari við sýningar og/eða æfingar greiðist 10% álag á laun leiðandi manns í hverjum flokki sýninga og æfinga.
2.1.3 Leiðandi maður
Leiðandi maður telst sá sem leiðir hóp hljómlistarmanna innan sama hljóðfæris eða sá sem er einn með sitt hljóðfæri.
2.1.4 Hljómsveitarstjóri
Hljómsveitarstjóri sem tekur þátt í flutningi fær greitt 50% álag á það kaup sem hann ella hefði fengið greitt sem hljóðfæraleikari.
2.1.5 Hækkanir á samningstíma
Laun samkvæmt grein 2.1.1 og 2.1.2 hækka á samningstímanum skv. kjarasamningi frá 6.4. 2021 hér að ofan.
2.1.6 Orlofs- og desemberuppbætur
Orlofs- og desemberuppbætur eru innifaldar í kaupi skv. gr. 2.1.1 og gr. 2.1.2.
2.2 Hljóðfæragjald, fatnaður.
Hljómlistarmanni ber að leggja sér til hljóðfæri og íklæðast viðeigandi fötum. Ef farið er fram á að hljóðfæraleikarar klæðist sérstökum fatnaði greiðist fatagjald að fjárhæð kr. 1.148 fyrir hverja sýningu.
Fyrir hvert aukahljóðfæri greiðast kr. 2.323 fyrir hverja æfingu og sýningu.
Gjald þetta miðast við vísitölu neysluverðs án húsnæðis (04/2023) og skal taka breytingum skv. henni á sama tíma og kauptaxti breytist.
2.3 Stórhátíðaálag
Á stórhátíðum greiðist 25% álag á kaup skv. gr. 2.1.1 og 2.1.2.
2.4 Neðangreint reiknast af launum skv. gr. 2.1.1, 2.1.2. og 2.3:
1. 10,17% orlofsfé. Eftir 3ja ára starf reiknast 11,59% orlofsfé og eftir 5 ára starf 13,04%.
2. 1% sjúkrasjóðsgjald
3. 0,25% orlofsheimilasjóðsgjald
4. Lífeyrissjóðsgjald er skiptist þannig: 4% greiðir viðkomandi hljómlistarmaður, 11,5% greiðir launagreiðandi. -
3. gr. Um vinnutíma
3.1 Með viðveru í grein 2.1.1 er átt við staðinn vinnutíma hljómlistarmanna svo og undirbúningstíma/heimavinnu. Hljómlistarmanni ber skylda til að mæta a.m.k. 20 mínútum fyrir leiksýningar til vinnu.
Standi æfing lengur en 6 klst. reiknast hver byrjaður hálftími kr. 4.052. Hið sama gildir um sýningu umfram 4 klst. Gjald þetta hækkar í samræmi við launahækanir í gr. 2.1.3.
3.2 Með æfingu í grein 2.1.2 er átt við tímalengd æfinga svo sem fram kemur í greininni og ber hljómlistarmanni að mæta vel undirbúinn til æfinga.
3.3 Hvíldir á æfingum:
Hvíldir á æfingum verði með svofelldum hætti:
Standi æfing í 2 tíma, skal taka 10 mínútna hvíld.
Standi æfing í 3 tíma, skal taka 15 mínútna hvíld.
Standi æfing í 4 tíma, skal taka 20 mínútna hvíld.
Skipta má hvíldum ef aðilar eru sammála um það.
Á æfingum þar sem eingöngu fer fram hljóðfæraleikur, skal heimilt að bæta 5 mínútum við ofangreindar hvíldir í hverju tilviki fyrir sig.
Hljómlistarmaður skal mæta stundvíslega til æfinga að loknum hvíldartíma.
-
4. gr. Hljóðritanir
4.1 Notkun hljóðritana.
Fyrir notkun hljóðritana í leiksýningu greiðist hljómlistarmanni 30% af sýningarkaupi. Ef hljóðritun er eingöngu notuð á undan leiksýningu (forleikur) og tónlistin óháð leikritinu sjálfu, greiðist 20% af sýningarkaupi. Fái hljómlistarmaður greitt sýningarkaup, sbr. grein 2.2, skal ekki jafnframt greiða honum fyrir notkun hljóðritunar í leiksýningunni.
4.2 Notkun hljóðritana í verkfalli.
Óheimil er notkun æfingahljóðritana eftir að verkfall hefur verið boðað.
4.3 Æfing fyrir hljóðritun.
Fyrir æfingu vegna hljóðritunar greiðist skv. gr. 2.1.2.
-
5. gr. Sýningar utan Reykjavíkur
5.1 Laun vegna sýninga utan Reykjavíkur.
Vegna sýninga utan Reykjavíkur, skal um launagreiðslur fara skv. gr. 2.1.
5.2 Hljóðfæragjald.
Um greiðslu hljóðfæragjalds á sýningarferðum fer skv. gr. 2.2.
5.3 Fæði og gisting.
Á ferðalögum skal LR sjá hljómlistarmönnum fyrir fæði og gistingu eða greiða dagpeninga skv. starfsreglum LR.
-
6. gr. Ýmis ákvæði
6.1 Boðun og afboðun æfinga og sýninga.
Sýningaráætlun skal ná a.m.k. mánuð fram í tímann og skal hanga uppi á aðgengilegum stað. Ekki er hægt að ákveða sýningu með minna en fjögrra sólarhringa fyrirvara.
Afboða ber sýningu með minnst 48 klst. fyrirvara.
Verði sýning ekki afboðuð með ofangreindum fresti skal greiða hljómlistarmanni 15% af sýningarlaunum. Þetta gildir þó ekki ef um algerlega óviðráðanlegar orsakir er að ræða og hljómlistarmanni er gert viðvart í tíma. Náist ekki í hljómlistarmann með sannanlegum hætti og hann mætir reiðubúinn að hefja störf, greiðast laun skv. 1. málslið þessara mgr.
6.2 Greiðsla leikaralauna.
Hefji hljómlistarmaður æfingar um leið og leikarar, má með samþykki hans greiða honum leikaralaun. Greiðsla leikaralauna er háð samþykki FÍH. Sýningarkaup skal þó eigi vera lakara en samningur þessi kveður á um.
6.3 Flutningur á stórum hljóðfærum.
Fyrir flutning á stórum hljóðfærum, s.s. kontrabassa, trommusettum o.s.frv., milli heimilis og vinnustaðar greiðist skv. framvísuðum reikningi.
6.4 Útvarps- og/eða sjónvarpsupptökur.
Heimilt er Leikfélagi Reykjavíkur að láta útvarpa og/eða sjónvarpa allt að 12 mínútum upptökum af æfingu eða leiksýningu í kynningarskyni endurgjaldslaust ef hljómlistarmaður þarf ekki að mæta sérstaklega.
-
7. gr. Tryggingar
7.1 Tjón á hljóðfæri.
Leikfélag Reykjavíkur skuldbindur sig til að bæta tjón sem verður á hljóðfærum í eigu hljómlistarmanna meðan á leiksýningum og æfingum stendur vegna þjófnaðar og skemmda og gildir það einnig um tjón sem þriðji aðili (óviðkomandi) veldur. Sama gildir um hljóðfæri sem Leikfélagi Reykjavíkur samþykkir að taka í geymslu fyrir hljómlistarmenn meðan á leiksýningum stendur.
Hljómlistarmaður skal tilkynna Leikfélagi Reykjavíkur um tjónið strax og við verður komið.
7.2 Tjón á persónulegum munum.
Verði hljómlistarmaður sannanlega fyrir tjóni á algengum nauðsynlegum fatnaði og munum við vinnu, s.s. úrum, gleraugum o.s.frv., skal það bætt samkvæmt mati. Slík tjón verða einungis bætt ef þau verða vegna óhappa á vinnustað. Eigi skal bæta tjón ef það verður vegna gáleysis eða hirðuleysis hljómlistarmannsins.
7.3 Atvinnuslysatryggingar.
Um atvinnuslysatryggingar hljómlistarmanna fer skv. gildandi kjarasamningi ASÍ og SA.
-
8. gr. Veikindi og vinnuslys
8.1 Vinnuslys eða atvinnusjúkdómur.
Í hverju slysa- eða sjúkdómstilfelli sem orsakast við vinnu eða af henni, greiði Leikfélag Reykjavíkur æfinga/sýningakaup í 4 vikur. Hljóðfæragjald greiðist ekki í veikindum.
Vinnuveitandi skal kosta flutning hins slasaða til heimilis eða sjúkrahúss og endurgreiða honum eðlilega útlagðan kostnað í allt að 4 vikur í hverju tilfelli, annan en þann sem almannatryggingar greiða.
8.2 Veikindaréttur.
Í veikindatilfellum öðlast hljómlistarmaður eitt sýningarkaup, eins og það kann að veraá hverjum tíma, fyrir hverjar 40 klst. sem hann hefur unnið hjá Leikfélagi Reykjavíkur eða í þágu þess. Þó skal aldrei greitt fyrir fleiri en 10 sýningar í hverju tilfelli. Veikindi ber að sanna með læknisvottorði, sé þess krafist.
-
9. gr. Gildistími
9.1 Gildistími.
Kjarasamningur þessi gildir frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024 með þeim breytingum og fyrirvörum sem í samkomulagi þessu felst og fellur þá úr gildi án freakari fyrirvara.
9.2 Kaup á flutnings- sýningar- og útgáfurétti
Semja skal um laun vegna kaupa LR á flutnings- sýningar- og útgáfurétti á tónlist og leiksýningum, söngleikjum og öðrum sýningum sem félagar í FÍH taka þátt í skv. samningi þessum. LR er einnig heimilt að gefa út á myndbandi og DVD og selja á frjálsum markaði þær sýningar sem hljómlistarmenn taka þátt í.
Sérupptökur utan sýninga og æfinga vegna útgáfu greiðast með tímalaunum miðað við gr. 2.1.1, sýning 3, kr. 9.284,- kaup leiðandi manns hverju sinni.
9.3 Samningsforsendur og atkvæðagreiðsla
Komi til þess að samkomulag náist á almennum vinnumarkaði um breytingu á kjarasamningum þeirra skulu aðilar taka upp viðræður um hvort og þá með hvaða hætti slík breyting taki gildi skv. samningum aðila.
Verði samningum á almennum vinnumarkaði sagt upp á grundvelli forsenduákvæðis þeirra á gildistíma samnings þessa er félaginu heimilt að segja upp samningum með 3 mánaða fyrirvara miðað við mánaðarmót.
Samningsaðilar skulu bera samning þennan, ásamt bókunum og fylgiskjölum, upp til samþykktar. Hafi gagnaðila ekki borist tilkynning um niðurstöðu fyrir klukkan 16:00 19.05.2023 skoðast hann samþykktur.