Orlofsheimili
Orlofshús FÍH:
Úthlíð: Hægt er að sækja um dvöl í Úthlíð árið um kring. Kjarrhús, Guðjónsgötu 11, í Úthlíð var keypt árið 2006. Bústaðurinn er á kjarri vöxnu landi og mjög vel búinn öllum nútímaþægindum ásamt heimum potti, gufubaði og grilli. Í bústaðnum eru 3 svefnherbergi með svefnplássi fyrir 6 manns, barnarúm og barnastóll.
Súðavík: Einnig er hægt að sækja um húsið við Túngötu 14 á Súðavík á sumrin og út október. Húsið er 150 m² fullbúið einbýlishús með bílskúr og í því eru 4 svefnherbergi með svefnplássi fyrir 8 manns, barnarúm og barnastóll. Í húsinu er þvottavél, þurrkari og uppþvottavél ásamt grilli og gufu. Stutt er í veiði og skemmtilegar skoðunarferðir. Hægt er að leigja sængurfatnað og handklæði hjá umsjónarmanni ef fólk vill.
Fjölskyldugarður Vestfjarða í Súðavík eða Raggagarður er í 400m fjarlægð frá Bjarnabúð. Skemmtilegur garður með leiktækjum við allra hæfi. Nánari upplýsingar eru á Raggagarður Súðavík á Facebook og á www.raggagardur.com
Útleiga fer fram gegnum skrifstofu félagsins og er einungis leigt út í viku í senn frá föstudegi til föstudags, frá og með 1. júní til 1. september. Á öðrum tíma er hægt að dvelja í Úthlið í skemmri tíma.
Fullgildir skuldlausir félagar ganga fyrir við úthlutun orlofshúsa.
Kjarrhús í Úthlíð:
Opið er fyrir umsóknir fyrir veturinn 2024 – 2025. Bendum á að umsóknir um dvöl í húsunum um jól, áramót, páska og sumarmánuðina fara fyrir Orlofsheimilanefnd FÍH.
Norðurgata á Akureyri
FÍH hefur ákveðið að framlengja samstarfið við eigendur á Norðurgötu 2b á Akureyri. Hægt er að bóka helgi í húsinu eða viku í senn eftir þvi sem hentar. Bendum á að umsóknir um dvöl um jól, áramót, páska og sumardvöl fara fyrir Orlofsheimilanefnd FÍH:
Norðurgata 2b. Akureyri lýsing 2024
Umsóknir skulu berast skriflega á umsóknareyðublaðinu hér fyrir neðan:
Hér er umsóknareyðublað fyrir Úthlíð, Akureyri og Súðavík
Myndir úr Kjarrhúsi í Úthlíð:
Myndir af húsinu við Norðurgötu á Akureyri:
Myndir af Bjarnabúð, Súðavík: