Útgáfuhóf – Söngbók séra Ólafs Jónssonar á Söndum

Þann 22. ágúst n.k. kl. 16:00 verður haldið útgáfuhóf  vegna útgáfu Söngbókar séra Ólafs Jónssonar á Söndum.

Séra Ólafur Jónsson (um 1560–1627), prestur á Söndum í Dýrafirði, var á meðal vinsælustu skálda á sinni tíð. Kvæði og sálmar annarra skálda eru yfirleitt varðveitt hér og þar í handritum en séra Ólafur safnaði kveðskap sínum saman í eina bók sem kölluð hefur verið Kvæðabók. Hún er merkilegt framlag til íslenskra bókmennta en hún er ekki hvað síst mikilvæg heimild um tónlist á Íslandi á 17. og 18. öld.

Þessi útgáfa kvæðanna með nótum, sem hér er kölluð Söngbók séra Ólafs Jónssonar á Söndum, er bæði ætluð fræðimönnum og áhugafólki um tónlist og sögu íslenskrar tónlistar.

Árni Heimir Ingólfsson, Johnny F. Lindholm, Margrét Eggertsdóttir og Þórunn Sigurðardóttir bjuggu ritið til prentunar. Ritstjóri er Jóhannes B. Sigtryggsson.

Dagskrá

16.00–16.05 Guðrún Nordal býður gesti velkomna

16.05–16.15 Þórunn Sigurðardóttir/Margrét Eggertsdóttir: Um Ólaf á Söndum og skáldskap hans

16.20–16.30 Árni Heimir Ingólfsson: Tónlistin við kvæði Ólafs á Söndum

Benedikt Kristjánsson söngvari mun syngja lög úr Söngbókinni.

Bókin verður einnig seld á góðum kjörum.

Allir eru velkomnir.

 

Ingibjörg Þórisdóttir

sviðsstjóri miðlunarsviðs

s. 822 9422

arnastofnun.is

Eddu, Arngrímsgötu 5, 107 Reykjavík