Menningarsjóður FÍH – 3. úthlutun 2024 mánudaginn 16. september

Við vekjum athygli ykkar á að 3. úthlutunarfundur ársins úr Menningarsjóði FÍH verður haldinn mánudaginn 16. september nk. og að umsóknir þurfa að hafa borist fyrir miðnætti fimmtudaginn 12. september til að umsóknin komi til greina við þá úthlutun.

Rafrænt umsóknareyðublað er að finna undir flipanum „Umsóknir“ —> „Menningarsjóður“.

Þar má einnig lesa úthlutunarreglur sjóðsins og við minnum á að umsóknir koma aðeins til greina ef upplýsingagjöfin er fullnægjandi.

 

Tilkynnt verður um niðurstöður styrkveitinga með rafrænum hætti.


Bestu kveðjur,

Úthlutunarnefnd Menningarsjóðs FÍH