Öflugt ráðuneyti menningar og skapandi greina

Breiðfylking samtaka, fyrirtækja og einstaklinga úr skapandi greinum, menningu og listum hvetur forystufólk stjórnmálaflokka sem nú hugar að myndun nýrrar ríkisstjórnar til að standa vörð um ráðuneyti menningarmála og festa það í sessi. 

Eftir áratuga ákall var ráðuneyti menningar sett á laggirnar árið 2022 og þar hefur grettistaki verið lyft með skilvirkri stjórnsýslu, skýrri forgangsröðun og stefnumótun í þágu lista, menningar og skapandi greina. Byggja þarf á þeim góða grunni sem varð til í öflugu samtali og samráði við listgreinarnar.

Ísland þarf öflugt menningarráðuneyti til að:

  • nýta vaxtartækifæri sem felast í verðmætasköpun menningar og skapandi greina
  • tryggja að greinarnar nái að blómstra hver á sínum forsendum 
  • auðga íslenska nýsköpun á tímum örrar tækniþróunar og atvinnuháttabyltinga
  • stórefla samvinnu um málefni íslenskrar tungu
  • styrkja samkeppnishæfni og standa vörð um stöðu greinanna á alþjóðavettvangi 

Tryggjum áfram öflugt, sjálfstætt menningarráðuneyti. Varðveitum þann árangur sem náðst hefur við að efla menningu og skapandi greinar, sem eru nú orðnar einn stærsti atvinnuvegurinn og sá sem er í hvað örustum vexti. (Stutta samantekt um efnahagsleg áhrif skapandi greina má t.d. finna í þessu myndbandi.)

Kjarni samfélagsins býr í menningunni – í fortíð, samtíð og framtíð.

Undir þessa yfirlýsingu skrifa Bandalag íslenskra listamanna, Samtök skapandi greina, Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, Miðstöð íslenskra bókmennta, Sviðslistamiðstöð, Tónlistarmiðstöð, Kvikmyndamiðstöð, Myndlistarmiðstöð, Rannsóknarsetur skapandi greina, Félag íslenskra safna og safnmanna, Íslandsdeild ICOM.

 

Nánari upplýsingar veita Jóna Hlíf Halldórsdóttir forseti BÍL (Bandalags íslenskra listamanna) s. 663-0545, bil@bil.is og Halla Helgadóttir formaður Samtaka skapandi greina og framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs, s. 699-3600, halla@honnunarmidstod.is.