FÍH – aðalfundarboð 2025

Aðalfundur FÍH 2025 verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl  kl. 18:00 í sal FÍH, Rauðagerði 27. Einnig verður hægt að sækja aðalfundinn á ZOOM fjarfundasniði og hlekkur verður sendur þegar nær dregur fundi.

Fundarefni:

  • Venjuleg aðalfundarstörf
  • Lagabreytingar
  • Kosning til stjórnar (kosið er um varaformann og meðstjórnanda)
  • Önnur mál

Boðið verður upp á veitingar í hléi.

Við bendum á eftirfarandi úr lögum félagsins:

Framboð til stjórnarsetu skulu berast skrifstofu félagsins a.m.k.
viku fyrir boðaðan aðalfund. Stjórn er heimilt að tilnefna félagsmenn í stjórnir og ráð hafi
ekki borist framboð fyrir tilskilinn tíma.

Við vonumst eftir góðri fundarþátttöku. Árangur félagsins  byggist á samtakamætti okkar og að þið takið þátt í að móta hvert við stefnum!

Bestu kveðjur

Stjórn FÍH