Kjarasamningur vegna tónlistarkennslu undirritaður.
Í gær 16. febrúar var undirritaður kjarasamningur milli FÍH og Sambands íslenskra sveitarfélaga um kaup og kjör tónlistarkennara. Í framhaldi af undirritun er boðað til félagsfundar í Rauðagerði 27 nk,laugardag kl.11:00 þar sem samningurinn verður kynntur. Reynt verður að senda fundinn út á netinu. Kosning um samninginn fer svo fram 22.-23.febrúar og hefst kosning kl. 9:00 á mánudagsmorgun og lýkur á miðnætti á þriðjudegi. Niðurstaða kosningar verður svo kynnt á heimasíðu FÍH og með rafpósti til félagsmanna fimmtudaginn 25.febrúar.
Fjölmennum á fundinn.
Samninganefnd FÍH
Ps. Myndin er frá undirritun samningsins