Kjarasamningur organista felldur í atkvæðagreiðslu
Kjarasamningur Félags íslenskra hljómlistarmanna f.h.FÍO/Organistadeildar FÍH við Samninganefnd Þjóðkirkjunnar var felldur í atkvæðagreiðslu sem fór fram dagana 11. og 12.febrúar sl.
Niðurstaða atkvæðagreiðslu var eftirfarandi: Já sögðu 15 eða 35,7% Nei sögðu 23 eða 54,8% og 4 skiluðu auðu eða 9,5%. Alls kusu því 42 sem þýðir 63,6% þátttaka í kosningunni.
Boðað er til félagsfundar þriðjudaginn 23.febrúar nk. kl.9:00 í Rauðagerði 27 þar sem næstu skref verða rædd.
F.h samninganefndar
Björn Th. Árnason formaður FÍH