Samstöðufundur á Austurvelli kl. 15:15 í dag mánudaginn 24. október
Kynslóðir kvenna ávarpa fundinn: Guðrún Ágústsdóttir, einn af stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar; Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM; Una Torfadóttir, ungur femínisti; og Justyna Grosel blaðamaður. Fram koma hljómsveitin Eva, Brynhildur Björnsdóttir söngkona og Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari, og Ellen Kristjánsdóttir og dætur. Lóa Bergsveinsdóttir stýrir takti. Baráttufundir eru einnig haldnir á Akureyri, Grundarfirði, Hellu, Höfn í Hornafirði, Neskaupstað og Þorlákshöfn. Nánari upplýsingar á http://www.kvennafri.is/kvennafri |