Ólafur Stephensen er látinn
Ólafur Stephensen, jazzpíanisti og auglýsingamaður, lést í fyrrinótt, áttræður að aldri, en hann fæddist í Reykjavík 1. febrúar 1936.
Auk þess að eiga glæstan feril, í rekstri auglýsingastofa og margháttaðri þátttöku í atvinnulífinu, var Ólafur liðtækur jazzpíanisti, gaf m.a. út þrjár jazzplötur undir nafni Tríó Óla Steph og spilaði með fjölmörgum íslenskum og erlendum jazzböndum.
Ólafur var meðlimur í FÍH um langar aldur og góður og öflugur liðsmaður alla tíð. Við þökkum góð kynni og sendum eftirlifandi eiginkonu og börnum, okkar dýpstu samúðarkveðjur.