Gengið til samninga um rekstur Listframhaldsskóla
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að ganga til samninga við Tónlistarskóla Reykjavíkur og Tónlistarskóla FÍH um stofnun nýs listframhaldsskóla á sviði tónlistar.
Í skólanum mun nemendum sem hyggjast leggja stund á framhaldsnám í tónlist gefast kostur á sérhæfðu undirbúningsnámi á því sviði.
Ákvörðunin er tekin í kjölfar ferlis sem Ríkiskaup heldur utan um og er í samræmi við niðurstöður matsnefndar sem skilaði áliti til mennta- og menningarmálaráðherra.
Gert er ráð fyrir að gengið verði til samninga við skólana á næstu dögum.