FÍH – opið á umsóknir um fyrri Úthlutun Tónlistarsjóðs 2025

Opnað hefur verið fyrir umsóknir vegna fyrri úthlutunar Tónlistarsjóðs árið 2025. 

 

Hér er frétt um málið og hér má finna allar upplýsingar og umsóknareyðublöð

 

Við bendum einnig sérstaklega á að Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við Tónlistarborgina Reykjavík og Eddu Konráðsdóttur framkvæmdastjóra Iceland Innovation Week, býður upp á vinnustofu þar sem umsækjendur geta fengið ráðleggingar og aðstoð við skrif styrkumsókna. Vinnustofan fer fram í húsnæði Tónlistarmiðstöðvar, Austurstræti 5, 101 Reykjavík þann 9. október. Skráningarform og frekari upplýsingar má finna hér.