Kjarabarátta tónlistarkennara
- Freyja Gunnlaugsdóttir
Nú á haustdögum standa tónlistarkennarar í erfiðri kjarabaráttu. Samningar hafa verið lausir um átta mánaða skeið og þau smánarlaun sem tónlistarkennarar hafa þegið fyrir vinnu sína hafa dregist langt aftur úr öðrum stéttum með sambærilega menntun.
Ísland hefur á undanförnum árum vakið athygli fyrir frjótt og spennandi tónlistarlíf og margir íslenskir listamenn hafa getið sér gott orð á alþjóðavettvangi. Þessi gróska á rætur að rekja til þess góða starfs sem unnið hefur verið í tónlistarskólum landsins. Tónlistarmenntun hefur verið almenn á Íslandi og skólarnir hafa gegnt mikilvægu hlutverki sem mennta- og menningarstofnanir víða um land. Tónlistarmenntun er mikilvægur þáttur í grunnmenntun þjóðarinnar og það að iðka tónlist frá barnsaldri gerir fólk hæfara til þess að takast á við lífið á margvíslegan hátt. Þar læra menn góð vinnubrögð, að koma fram, gagnrýna hugsun og það að vinna í hóp auk þess að upplifa galdur tónlistarinnar sem gerir veröldina bærilegri. Ótal rannsóknir sýna fram á að tónlistarmenntun hafi jákvæð áhrif á aðra menntun, bæði í raungreinum og hugvísindum.
„Í fáum öðrum löndum kenna leiðandi hljóðfæraleikarar þjóðarinnar á framhaldsstigi og allt niður í grunnstig. Það er gríðarlega mikilvægt að þessi hópur haldi áfram að kenna og miðla áfram dýrmætri þekkingu og reynslu.“
Tónlistarkennarar eru breiður hópur fólks og flestir af okkar færustu tónlistarmönnum eru í þeirra hópi. Ein af meginástæðum þess að íslenska tónlistarskólakerfið er eins sterkt og raun ber vitni er sá mannauður sem starfar innan skólanna. Menntunarstig stéttarinnar er hátt og nemendur hafa aðgang að færustu sérfræðingum á sínu sviði. Í fáum öðrum löndum kenna leiðandi hljóðfæraleikarar þjóðarinnar á framhaldsstigi og allt niður í grunnstig. Það er gríðarlega mikilvægt að þessi hópur haldi áfram að kenna og miðla áfram dýrmætri þekkingu og reynslu. Þau eru mikilvægar fyrirmyndir fyrir þá kynslóð tónlistarmanna sem er að vaxa úr grasi. Það er ekki hægt að ætlast til að sérfræðingar sinni kennslu í sjálfboðavinnu, hvorki í tónlist né öðrum greinum.
Launamisrétti verði leiðrétt
Ekki er síður mikilvægt starf þeirra sem hafa helgað líf sitt kennslu og hjálpa nemendum að feta sín fyrstu skref á tónlistarbrautinni. Í tónlistarskólum landsins er unnið óeigingjarnt starf sem skilar árangri til frambúðar og lyftir menntunarstigi þjóðarinnar upp á annað plan.
Tónlistarkennarar hafa farið fram á eðlilega launaleiðréttingu til jafns við þær stéttir sem vinna sambærileg störf. Tónlistarkennarar eru háskólamenntuð stétt og krefst þess að sú menntun sé metin til launa til jafns við aðrar stéttir.
Tónlistarkennarar hvetja sveitarfélögin til þess að leiðrétta það launamisrétti sem skapast hefur á síðustu árum. Það er eðlilegt hlutverk sveitarfélaga að fylgjast með launaþróun og leiðrétta þá stöðu sem þeir bera sjálfir ábyrgð á. Það eru engin rök sem geta réttlætt að tónlistarkennarar þiggi mun lægri laun en aðrir kennarar og stéttir með sambærilega menntun.
Við hvetjum sveitarfélögin til þess að ljúka samningum við tónlistarkennara og vinna að því að leiðrétta þann alvarlega launamun sem skapast hefur milli tónlistarkennara og annarra stétta.