Almenn lausavinna
Tónleikar og skemmri tónlistarflutningur.
Uppreiknað 1.2.2024 m.v. vísitölu í des. 2023: 966,3 stig
-
1. gr. Almennt
Tónleikar/annar tónlistarflutningur kr. 51.328.- alls með launatengdum gjöldum kr. 66.728.-. Tímakaup er kr. 12.832.- án launatengdra gjalda, en kr. 16.682.- með launatengdum gjöldum.
-
2. gr. Lágmarksútkall
Lágmarksútkall er 2 klst. Á hverja æfingu reiknast 1 klst. í heimavinnu.
-
3. gr. Tónleikar
Tónleikar reiknast 4 klst.
-
4. gr. Konsertmeistari
Álag konsertmeistara 30%.
-
5. gr. Einleikur
Álag fyrir einleikshlutverk 40%.
-
6. gr. Hljómsveitarstjórn
Álag fyrir hljómsveitarstjórn 50%.
-
7. gr. Aðrar greiðslur
Greiða skal þ.a.a. 10.17% orlof, 7% verkfæragjald, 8% lífeyrissjóð, 1.25% sjúkra-og orlofsheimilasjóð, tryggingargjald 6,35 % eða samtals 32,77%.
-
8. gr. Stærri hópar
Séu flytjendur 18 eða fleiri, skal samið sérstaklega um greiðslur til þeirra.
-
9. gr. Ferðalög og stórhátíðarálag
Greiða skal uppihalds-og ferðakostnað auk dagpeninga sem hér segir:
a) Dagsferðir: Tímakaup frá því að lagt er af stað, þar til komið er til baka.
b) Lengri ferðir: Tímakaup 10 kst. hvern byrjaðan dag, að frádregnum æfngatíma.Á eftirtöldum stórhátíðardögum skal greiða 50% álag:
nýársdag, föstudaginn langa, páskadag, hvítasunnudag, 17. júní, aðfangadag jóla eftir kl. 12:00, jóladag, og gamlársdag eftir kl. 12.