Styrkir til evrópskra tengslaneta í Creative Europe – umsóknarfrestur 25. nóvember
Styrkir til evrópskra tengslaneta í Creative Europe – umsóknarfrestur 25. nóvember
Markmiðið er að styðja netin og aðildarfélög til evrópsks samstarfs. Netin stuðla að fjölbreytni á sviði tungumála og menningar, styrkja samkeppni, skiptast á og deila margvíslegri reynslu.
Netin samanstanda af minnst 15 aðildarfélögum frá 10 evrópulöndum (þar af 5 frá ESB löndum) Næsti umsóknarfrestur er 25. nóvember 2016 og hægt er að sækja um samstarf til 4 ára. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á síðu Education, Audiovisual and Cultrue Executive Agency https://eacea.ec.europa.eu/creative-europe/actions/culture/european-networks_en
Hverjir geta sótt um: Þeir sem starfa á sviði skapandi greina, menningarsamtök ýmis konar sem starfa við konar listgreinar eins og myndlist, dans, leiklist, bókmenntir, tónlist, menningararfleifð, arkitektúr, hönnun, hátíðir, handverk, tíska. Einungis lögaðilar á sviði skapandi greina geta sótt um og tilheyra þátttökulöndum Creative Europe. Einstaklingar geta ekki sótt um styrki.
Upphæð styrkja: allt að 250.000€ á ári og 80% af heildarkostnaði. Farið er fram á 20% mótframlag.
Sjá nánar lista yfir styrkt net:
http://www.creativeeuropeuk.eu/european-networks
Umsóknarfrestur er til 25. nóvember 2016. Hægt er að leita eftir aðstoð á Creative Europe skrifstofu Rannís. Umsóknir eru rafrænar, umsækjendur þurfa að verða sér úti um pic númer til að komast áfram með umsókn (participant portal) með því að skrá sig á ECAS grunn .https://ec.europa.eu/education/participants/portal/desktop/en/home.html
Bestu kveðjur/best wishes
Ragnhildur Zoega,
Innlendir menningarsjóðir og Creative Europe,
http://eacea.ec.europa.eu/creative-europe_en
Rannsóknamiðstöð Íslands – Rannís │The Icelandic Centre for Research – RANNÍS
Borgartúni 30, 2. hæð
IS-105 Reykjavík, Iceland
Sími│Tel: +354-515 5838
Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) www.rannis.is