Vetrarþing FÍH 21. janúar 2017

 

Þann 21. janúar næstkomandi mun kennaradeild FÍH standa fyrir vetrarþingi í sal FÍH í Rauðagerði 27. FÍH vill með þinginu stuðla að faglegri umræðu um tónlistarkennslu og bjóða kennurum að taka þátt í dagskrá sem tekur á mikilvægum málefnum sem snúa að tónlistarmenntun. Vetrarþingið getur jafnframt nýst sem hluti af símenntunaráætlun tónlistarskólanna. Á þinginu nú í vetur verður einkum fjallað um tvö viðfangsefni og verður boðið upp á fyrirlestra og opnar umræður í tengslum við þau. Jafnframt fer fram kynning á endurskoðuðum reglum starfsmenntunarsjóðs tónlistarkennara. Við bjóðum alla kennara og tónlistarmenn velkomna að taka þátt í þinginu.

Dagskrá

10:00 Heilsuefling í tónlistarkennslu

Kári Árnason, sjúkraþjálfari flytur fyrirlestur um heilsueflingu í tónlistarkennslu.

11:00 Kaffihlé

11.15   Kynning á starfsmenntunarsjóði FÍH

Freyja Gunnlaugsdóttir kynnir starfsmenntunarsjóð FÍH. Farið verður yfir endurskoðaðar reglur sjóðsins og hlutverk hans.

11:45 Hádegismatur að hætti hússins

12:30 Heyrn og tónlistarkennsla

Dr. Einar Einarsson heyrnarfræðingur flytur fyrirlestur um heyrn.

„Heyrnin og  mikilvægi reglulegs eftirlits með heyrn tónlistarkennara og nemenda”

 

13:30 Umræður

 

14:00 Þinglok

 

Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og vonumst við til að sjá sem flesta kennara og tónlistarmenn. Reiknað er með opnum umræðum um viðfangsefnið í lok hvers fyrirlestrar. Þingið er þátttakendum að kostnaðarlausu sem og hádegisverður. Vinsamlega skráið ykkur hjá FÍH í síma 5888255 eða sendið póst á netfangið fih@fih.is

 

Með kærri kveðju

 

Freyja Gunnlaugsdóttir