Til kennara og organista í FÍH / Starfsmenntunarsjóður FÍH
Til kennara og organista í FÍH
Starfsmenntunarsjóður FÍH óskar eftir umsóknum í C-deild sjóðsins vegna námsefnisgerðar, rannsóknar- og þróunarverkefna. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. desember. Þeir sem sækja um styrk úr sjóðnum skulu senda stjórn sjóðsins umsókn í gegn um umsóknarvef á heimasíðu FÍH, sem finna má á slóðinni: http://viska.is/stms. Með umsókn í C- deild sjóðsins skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar:
- Almennar upplýsingar um umsækjanda.
- Nöfn annarra þátttakenda og samstarfsaðila, ef einhverjir eru.
- Upplýsingar um menntun og fræðilegan bakgrunn umsækjanda.
- Upplýsingar um fyrri verk á sviði námsefnisgerðar, rannsóknar- og þróunarverkefna.
- Greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og þýðingu.
- Upplýsingar um gildi verkefnis. Er t.d. þörf fyrir verkefnið og bætir það einhverju við það efni sem þegar er á boðstólum.
- Lýsing á þeirri aðferðafræði/hugmyndafræði sem liggur að baki verkefninu.
- Tímasett verkáætlun.
- Greinargóðar upplýsingar um áætlaðan kostnað við verkefnið.
- Upplýsingar um hvort sótt hafi verið um aðra styrki til sama verkefnis.
- Með umsókn skulu fylgja drög að verkefninu/námsefninu. Drögin skulu sýna helstu efnistök og sýna fram á að fagmennska einkenni verkefnið.
Senda skal umsóknir rafrænt til sjóðsstjórnar á slóðinni: http://viska.is/stms
Öllum umsóknum verður svarað fyrir 1. febrúar 2018.
Önnur fylgigögn skal póstsenda á:
Starfsmenntunarsjóður FÍH
Rauðagerði 27
108 Reykjavík