Lista- og menningarsjóður Kópavogsbæjar – styrkir lausir til umsóknar

 

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr lista- og menningarsjóði vegna verkefna á næsta ári. Umsóknum skal skila fyrir 17. nóvember 2018. Hlutverk sjóðsins er að efla menningarlífið í Kópavogi í samræmi við menningarstefnu bæjarins. Styrkir eru veittir einstaklingum, stofnunum og listhópum.
Umsækjendur um styrki verða að sýna fram á gildi verkefnisins fyrir lista- og menningarlífið í Kópavogi, getu til að hrinda verkefninu í framkvæmd og leggja fram skýra fjárhagsáætlun. Lista- og menningarráð fer yfir umsóknir og afgreiðir þær fyrir árslok.

Umsóknareyðublöð og úthlutunarreglur má nálgast á heimasíðunni menningarhusin.kopavogur.is. Nánari upplýsingar veitir Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála í Kópavogi, í gegnum netfangið soffiakarls@kopavogur.is

 

 

Með kveðju,

 

Soffía Karlsdóttir

Forstöðumaður menningarmála Kópavogsbæjar

441 7606 | 823 5040 | soffiakarls@kopavogur.is

 

Digranesvegur 1 | 200 Kópavogur | Sími 441 0000